
| Karakter | |
|---|---|
| Bygning | 8.35 |
| Rideegenskaber | 9.07 |
| Total | 8.78 |
Kiljan gefur hross í meðallagi að stærð og eru þau bráðþroska hvað vöðvabyggingu varðar. Afkvæmin hafa skarpt höfuð en heldur gróft. Þau hafa reistan og vel settan háls og úrvals bak og lend; breitt og vöðvað bak og öfluga lend. Afkvæmin eru jafnan hlutfallarétt og fótahá. Fætur eru þurrir en sinaskil lítil. Réttleiki er góður og hófar efnisþykkir. Prúðleiki á fax og tagl er slakur. Kiljan gefur alhliðageng og virkjamikil hross. Töltið er takthreint og skrefmikið en stundum skortir mýkt. Brokkið er skrefmikið og takthreint og stökkið er hátt og teygjugott. Fetið er skrefstutt. Viljinn er ásækinn og lundin traust. Afkvæmin fara afar vel í reið með háum hreyfingum og hafa kraftmikla framgöngu. Kiljan frá Steinnesi gefur öfluga yfirlínu og fjölhæf afrekshross í fremstu röð. Kiljan hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og annað sætið.
Kiljan gefur hross í tæpu meðallagi að stærð. Afkvæmin hafa fremur góða frambyggingu. Mörg þeirra hafa úrvals bak og lend; bakið er breitt og vöðvafyllt og lendin löng og öflug. Samræmi er yfirleitt gott og afkvæmin eru jafnan hlutfallarétt og fótahá. Fætur eru grannir og sinaskil lítil. Réttleiki er góður og hófar þokkalegir. Afkvæmin eru óprúð. Kiljan gefur alhliðageng og skrefmikil hross en stundum vantar skrokkmýkt. Töltið er takthreint og lyftingargott og brokkið skrefmikið. Stökkið er hátt og viljinn drjúgur. Afkvæmin fara að jafnaði vel með góðri fótlyftu. Kiljan gefur prýðilega gerð hross með öfluga yfirlínu og góða alhliða reiðhestskosti. Kiljan hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og annað sætið.
Hingsten bedækker på denne adresse