| Karakter | |
|---|---|
| Bygning | 8.61 |
| Rideegenskaber | 8.59 |
| Total | 8.60 |
Afkvæmi Elds eru hlutfallarétt og sívalvaxin hross í meðallagi að stærð með svipgott höfuð. Hálsinn er reistur og mjúkur við háar herðar, lendin er öflug en baklína mætti stundum vera hærri. Fætur eru afar traustir, þurrir og prúðir með öflugar sinar en nágengir að aftan. Hófar eru efnismiklir en stundum víðir og þau eru afar prúð á fax og tagl. Töltið í afkvæmunum er mjúkt og rúmt en mætti vera virkjameira á hægu. Brokkið er takthreint og skrefmikið og skeiðið öruggt og skrefmikið sé það fyrir hendi. Stökkið er rúmt en oft sviflítið, hæga stökkið er burðarlítið, fetið er takthreint. Eldur gefur sterklega byggð hross með trausta og yfirvegaða lund en viljinn er ekki snarpur. Þau eru prúð í fasi og mjúkgeng reiðhross með góðan höfuðburð og hlýtur Eldur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og fimmta sætið.
Eldur gefur hlutfallarétt hross í meðallagi að stærð með svipgott höfuð. Hálsinn er mjúkur við háar herðar og lendin er öflug. Fótagerðin er afar sterkbyggð, fæturnir eru þurrir með öflugar sinar en nágengir að aftan. Hófar eru vel formaðir og afkvæmin eru prúð á fax og tagl. Eldur gefur geðþekk, þjál og mjúkgeng reiðhross með takhreint tölt og brokk. Skeiðið er takthreint og öruggt sé það fyrir hendi. Afkvæmin fara vel í reið með góðum höfuðburði. Eldur hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og fimmta sætið.